Skeljungsránið "Hinn fullkomni glæpur"
()
About this ebook
Read more from Forfattere Diverse
Norræn Sakamál 2003 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNorræn Sakamál 2004 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsÞegar áfallið reið yfir Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNorræn Sakamál 2002 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsÖll fjölskyldan skipulagði heiðursmorð Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNorræn Sakamál 2006 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNáriðillinn var líka brennuvargur Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNorræn Sakamál 2007 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsTöskumorðið Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBarnaníðingsins fláráða fés Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBandidosmeðlimur sprengdur í loft upp Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsZorro morðið Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsHendur sem meiða Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsÁ hælum maraþonhlaupara Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsMál Bobbys skók sænsku þjóðina Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsLíkfundarmálið Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsTuborgræninginn Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsMorðin þrjú á Orderud-býli Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsLögreglumorðin í Malexander Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsTvær stúlkur voru skildar eftir til að deyja Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsArmur laganna lýkur upp luktum dyrum Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBlekingegade málið Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNorræn Sakamál 2001 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsSvikavefur Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsGróft rán í Grebbestad Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsCharles Manson – var hann frelsari eða meistari blekkinga? Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsSyni Charles Lindbergh var rænt! Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBrennuvargurinn í Unnaryd Rating: 0 out of 5 stars0 ratings
Related to Skeljungsránið "Hinn fullkomni glæpur"
Related ebooks
Norræn Sakamál 2005 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNorræn Sakamál 2001 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsGróft rán í Grebbestad Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsÍslenskur samtími Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBlekingegade málið Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBrot úr sögu lögreglunnar í Reykjavík á árunum 1918 til 1997 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsMaðurinn í tunglinu: leynilögreglusaga Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsTuborgræninginn Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsLíkfundarmálið Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNorræn Sakamál 2006 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsÓdæðið á Baneheia Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBrennuvargurinn í Unnaryd Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsTvær stúlkur voru skildar eftir til að deyja Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsÁ hælum maraþonhlaupara Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBasil fursti: Hýenur Lundúnaborgar Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsRúnaletrið kom upp um morðingjann Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsMorðið á Tom Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsSvikavefur Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNorræn Sakamál 2007 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsRambó Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsHendur sem meiða Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBasil fursti: Í klóm pyntingarmunkanna Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsAðgerð Carl Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsMilljónarseðillinn Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsSakamálarannsókir í Bosníu og Herzegóvínu Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBandidosmeðlimur sprengdur í loft upp Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBasil fursti: Mannrán og mansal Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsLögreglumorðin í Malexander Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsGæfuskórnir Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsHreinsarinn 6: Hreinsunin Rating: 0 out of 5 stars0 ratings
Related categories
Reviews for Skeljungsránið "Hinn fullkomni glæpur"
0 ratings0 reviews
Book preview
Skeljungsránið "Hinn fullkomni glæpur" - Forfattere Diverse
Forfattere Diverse
Skeljungsránið Hinn fullkomni glæpur
SAGA Egmont
Skeljungsránið "Hinn fullkomni glæpur"
Skeljungsránið "Hinn fullkomni glæpur"
Cover image: Shutterstock
Copyright © 2004, 2020 Ýmsir höfundar and SAGA Egmont
All rights reserved
ISBN: 9788726523508
1. e-book edition, 2020
Format: EPUB 2.0
All rights reserved. No part of this publication may be reproduced, stored in a retrievial system, or transmitted, in any form or by any means without the prior written permission of the publisher, nor, be otherwise circulated in any form of binding or cover other than in which it is published and without a similar condition being imposed on the subsequent purchaser.
SAGA Egmont www.saga-books.com – a part of Egmont, www.egmont.com
Skeljungsránið „Hinn fullkomni glæpur"
Eftir Árna Þór Sigmundsson aðalvarðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík.
Á árinu 2002 var sýndur í sjónvarpinu þáttur í þáttaröðinni Sönn íslensk sakamál. Þátturinn bar nafnið „Hinn fullkomni glæpur". Hann fjallaði um tvö óleyst ránsmál frá árinu 1995. Sýning þessa sjónvarpsþáttar átti sinn þátt íþví að rannsókn þessara mála var hafin á ný þegar flestir höfðu gefið upp vonina um að þau leystust.
Fyrri hluti
Mánudagurinn 27. febrúar 1995
Mánudagurinn 27. febrúar 1995 virtist ætla að verða ósköp venjulegur dagur. Nokkur snjór var á jörðu í Reykjavík eins og svo oft í febrúar en veður var ágætt og borgarbúar á leið til vinnu sinnar eins og venjulega. Talsverð umferð ökutækja og gangandi vegfarenda var í miðborginni og atvinnulífið var að taka á sig hefðbundna mynd eftir helgina.
Þessi dagur átti þó eftir að verða óvenjulegur og eftirminnilegur fyrir margra hluta sakir.
Hann varð án efa ógleymanlegur tveimur starfsstúlkum olíufélagsins Skeljungs sem höfðu það starf að safna saman helgarsölu fyrirtækisins á bensínstöðvum þess á höfuðborgarsvæðinu. Þær höfðu fram að þessu getað sinnt starfi sínu án þess að þurfa að óttast um öryggi sitt.
Hann hefur án efa orðið eftirminnilegur þremur grímuklæddum mönnum sem að morgni dags sátu íklæddir vinnusamfestingum í hvítri Saab-bifreið á bifreiðastæði við Íslandsbanka í Lækjargötu 12.
Hann átti eftir að verða óvenju annasamur fyrir allflesta lögreglumenn sem voru við störf í Reykjavík og nágrenni.
Atburðir dagsins áttu einnig eftir að verða eftirminnilegir þeim sem þetta ritar. Hann átti eftir að eyða nokkurra mánaða vinnu í rannsóknir og vangaveltur tengdar atburðum dagsins, rúmum átta árum eftir að þeir gerðust.
Þennan dag var framið rán í Reykjavík sem átti sér fáar hliðstæður hér á landi á þessum tíma. Ránið var óvenjuvel skipulagt og þrátt fyrir gríðarlega mikla rannsóknarvinnu, sem unnin var af Rannsóknarlögreglu ríkisins, var það lagt til hliðar sem óupplýst nokkrum árum síðar.Þess var beðið að nýjar upplýsingar bærust svo að hægt yrði að taka það til rannsóknar á ný. Á því virtist þó ætla að verða bið og líkur á að það fyrntist að lokum.
Eftir breytingar á lögreglulögum var Rannsóknarlögregla ríkisins lögð niður og embætti ríkislögreglustjóra stofnað þann 1. júlí 1997. Í framhaldi af því var Lögreglustjóranum í Reykjavík sent málið til þóknanlegrar meðferðar, eins og það er orðað, með bréfi Ríkislögreglustjóra dagsettu 28. apríl 1998. Þetta þýðir einfaldlega að engar nýjar upplýsingar höfðu borist sem kynnu að koma að gagni við rannsókn málsins. Það leit því út fyrir að þetta vel skipulagða og undirbúna rán ætlaði að heppnast.
Skoðum málið nánar.
Lækjargata/Vonarstræti, mánudaginn 27. febrúar, kl. 10.07
Lítilli fólksbifreið, hvítri að lit, merktri Skeljungi, er ekið inn á bifreiðastæði Íslandsbanka á gatnamótum Lækjargötu og Vonarstrætis um klukkan tíu að morgni.
Í bifreiðinni eru tvær ungar konur, starfsmenn Skeljungs, með háa fjárhæð í fórum sínum. Þennan dag eru þær með helgarsölu um það bil fimmtán afgreiðslustöðva fyrirtækisins, sem