Mál Bobbys skók sænsku þjóðina
()
About this ebook
Read more from Forfattere Diverse
Stjúpmóðirin Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsTöskumorðið Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNáriðillinn var líka brennuvargur Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsRambó Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsTvær stúlkur voru skildar eftir til að deyja Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsArmur laganna lýkur upp luktum dyrum Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsÞegar áfallið reið yfir Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsMilljónaarfur var ástæða morðs Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNorræn Sakamál 2002 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBlekingegade málið Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsHryðjuverk Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsÞegar ofbeldi kryddar knattspyrnu Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsGróft rán í Grebbestad Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsZorro morðið Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsSvikavefur Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsMorð á aðfangadagskvöld Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNorræn Sakamál 2001 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsÓdæðið á Baneheia Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsHendur sem meiða Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsCharles Manson – var hann frelsari eða meistari blekkinga? Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBandidosmeðlimur sprengdur í loft upp Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsSyni Charles Lindbergh var rænt! Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsAðgerð Carl Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNorræn Sakamál 2004 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsSkeljungsránið "Hinn fullkomni glæpur" Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsTuborgræninginn Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsNorræn Sakamál 2007 Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsMorðin þrjú á Orderud-býli Rating: 0 out of 5 stars0 ratings
Related to Mál Bobbys skók sænsku þjóðina
Related ebooks
Zorro morðið Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBasil fursti: Hið dularfulla X Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsSyni Charles Lindbergh var rænt! Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBjarnar saga Hítdælakappa Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsAðgerð Carl Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsMorðið á Önnu Lindh Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsArmur laganna lýkur upp luktum dyrum Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsLjósvetninga saga Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBasil fursti: Í klóm pyntingarmunkanna Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsTvær stúlkur voru skildar eftir til að deyja Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsTöskumorðið Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsHarmleikur í Knutby – ótrúleg saga en sönn Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsGamla húsið Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsDAGNÝ Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsÓhugnaðardalurinn Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsVopnfirðinga saga Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBindindissögur Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBasil fursti: Guli kvennasalinn Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsEinkamál Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsRúnaletrið kom upp um morðingjann Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsVertu góður við mig Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsKjalnesinga saga Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsLeyndarmál suðurhafsins Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsSakamálarannsókir í Bosníu og Herzegóvínu Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsVíga-Glúms saga Rating: 0 out of 5 stars0 ratings
Reviews for Mál Bobbys skók sænsku þjóðina
0 ratings0 reviews
Book preview
Mál Bobbys skók sænsku þjóðina - Forfattere Diverse
Mál Bobbys skók sænsku þjóðina
Cover image: Shutterstock
Copyright © 2007, 2020 Ýmsir höfundar and SAGA Egmont
All rights reserved
ISBN: 9788726512380
1. e-book edition, 2020
Format: EPUB 2.0
All rights reserved. No part of this publication may be reproduced, stored in a retrievial system, or transmitted, in any form or by any means without the prior written permission of the publisher, nor, be otherwise circulated in any form of binding or cover other than in which it is published and without a similar condition being imposed on the subsequent purchaser.
SAGA Egmont www.saga-books.com – a part of Egmont, www.egmont.com
Mál Bobbys skók sænsku þjóðina
Eftir Karl-Olof Ackerot, rannsóknarlögreglumann í Gautaborg.
Það er ekki hægt að lýsa með orðum þeim hryllingi og vanlíðan sem Bobby, sem var aðeins tíu ára, varð að þola heima hjá sér. Á margra vikna tímabili í kringum áramótin 2005–2006 þurfti drengurinn að þola grófar misþyrmingar, svo grófar að síðar ákváðu dómstólar að flokka þær sem pyntingar. Þessar misþyrmingar leiddu að lokum til dauða Bobbys.
Eftir að Bobby var látinn reyndu móðir hans og unnusti hennar að fela dauðsfallið með því að tilkynna að Bobby væri horfinn, á svipuðum tíma og þau sökktu líki hans í vatn nærri heimili þeirra.
Það var röð ýmissa aðstæðna sem að lokum kom lögreglunni á sporið og varð til þess að málið upplýstist.
Móðirin og unnusti hennar voru handtekin og dæmd til langrar fangelsisvistar, þó ekki fyrir morð. „Stjúpfaðir" drengsins áfrýjaði dómi sínum til Hæstaréttar sem í árslok 2006 ákvað að mál hans væri ekki tækt fyrir Hæstarétt.
Tíu ára drengs saknað
Um klukkan 17.00 laugardaginn 29. janúar 2006 hringdi maður að nafni Eddy Larsson í lögregluna og tilkynnti að Bobby, sonur sambýliskonu hans, væri horfinn. Lögreglumenn voru sendir heim til hans í Hisingen í Gautaborg til að ræða við móður drengsins, Niinu Äikiä, og Eddy þennan, sambýlismann hennar.
Eddy Larsson hafði orð fyrir þeim. Hann sagði að þau þrjú hefðu komið akandi frá Smálöndunum og væru á leið til Stenungsund, í heimsókn til Vukko, móður Niinu. Þau hefðu stoppað í Bäckebol til að kaupa smágjöf handa henni.
Sonur Niinu, en Eddy var ekki faðir hans, þjáðist af sjúkdómi sem heitir Fragil X en það er sjúkdómur sem líkist ADHD. Þessi sjúkdómur veldur því að andlegur þroski viðkomandi einstaklings verður mjög óeðlilegur og hægur og var Bobby sagður vera með andlegan þroska fjögurra til fimm ára barns. Auk þess hafði hann verið greindur með ADHD-sjúkdóminn.
Eddy sagði líka að sjúkdómar Bobbys hefðu í för með sér að hann ætti við athyglisbrest að stríða, taugaveiklun og ætti erfitt með að hemja skap sitt. Hann sagði að Bobby væri mannfælinn og að síðustu daga hefði hann verið reiður og ekki viljað fara í skólann.
Hann hafði ekki viljað fara með Eddy og móður sinni inn í verslunarmiðstöðina og því fengið að bíða í bílnum. Þetta hafði að sögn gerst áður en Bobby hafði aldrei áður farið úr bílnum. Eddy og Niina höfðu komið aftur að bílnum eftir um korter og þá hafði Bobby verið horfinn.
Bobby var lýst svo að hann væri um 150 sentímetrar á hæð og væri dökkur á hörund þar sem móðir hans væri hvít en faðirinn svartur.
Lögreglumennirnir, sem ræddu við Niinu og Eddy, sögðu að Eddy hefði haft orð fyrir þeim báðum.
Drengurinn sætti grimmilegum pyntingum heima
Eddy Larsson fór með lögreglumönnunum í lögreglubílnum og leitaði með þeim í nágrenninu að Bobby. Á meðan sagði hann lögreglumönnunum að Bobby væri mannafæla og þegar hann yrði reiður henti hann sér oftast á rúmið sitt, hann væri hægur í hreyfingum og útskeifur, stirðlegur og liti út eins og gamall maður þegar hann gengi. Hann taldi líklegast að Bobby mundi fela sig ef hann áttaði sig á að einhverjir sem hann þekkti ekki væru að leita hans. Hann mundi ekki sjálfur setja sig í samband við neinn að fyrra bragði.
Eddy virtist þó ekki vera órólegur. Lögreglumönnunum fannst eins og Niina virtist ekki átta sig á hvað hefði gerst. Hún gat ekki gefið þeim upp símanúmer eða heimilisfang án þess að líta fyrst í minnisbók sína. Hún gat ekki svarað neinum spurningum um Bobby, t.d. vissi hún ekki hvort hann gæti ekið bíl eða hvort hann mundi fela sig fyrir ókunnugum.
Niina sýndi engar tilfinningar vegna atburðarins og spurði heldur ekki hvers vænta mætti í framhaldinu. Hún virtist ekki hafa neinar áhyggjur af Bobby. Hún svaraði öllum spurningum lögreglumannanna mjög stuttlega.
Leit að Bobby
Þar sem það var tíu ára þroskaskertur drengur sem var horfinn setti lögreglan strax af stað umfangsmikla leit með öllum þeim mannskap