Discover millions of ebooks, audiobooks, and so much more with a free trial

Only $11.99/month after trial. Cancel anytime.

KF Mezzi 3 - Klippan
KF Mezzi 3 - Klippan
KF Mezzi 3 - Klippan
Ebook43 pages32 minutes

KF Mezzi 3 - Klippan

Rating: 0 out of 5 stars

()

Read preview

About this ebook

Tómas og vinir hans í KF Mezzi eru komnir upp um deild og fá því loksins að keppa við gamla liðið sitt, KFK. En eftir sérstaklega erfiðan leik kemur Daníel, þjálfari KFK, til Tómasar, Sölva og Bergs og býður þeim aftur í gamla liðið. Þeir séu nefnilega að fara í ferð til Hollands og vanti aukaleikmenn. Taka strákarnir boðinu? Eða halda þeir áfram í KF Mezzi og fara að skipuleggja sitt eigið ferðalag? Það fer allt eftir úrslitum leiks KF Mezzi og KFK.KF Mezzi er sería af fótboltabókum eftir Daniel Zimakoff fyrir 8-12 ára. Serían fjallar um vinina Tómas, Sölva og Berg og gleði þeirra og vandamál með þjálfara, félaga og andstæðinga. Þeir taka þátt í að stofna fótboltaliðið KF Mezzi sem er blandað lið, það eru líka stelpur með í liðinu.
LanguageÍslenska
PublisherSAGA Egmont
Release dateMar 29, 2022
ISBN9788726915600

Read more from Daniel Zimakoff

Related to KF Mezzi 3 - Klippan

Titles in the series (88)

View More

Related ebooks

Related categories

Reviews for KF Mezzi 3 - Klippan

Rating: 0 out of 5 stars
0 ratings

0 ratings0 reviews

What did you think?

Tap to rate

Review must be at least 10 words

    Book preview

    KF Mezzi 3 - Klippan - Daniel Zimakoff

    KF Mezzi 3 - Klippan

    Translated by Kjartan Már Ómarsson

    Original title: FC Mezzi 3 - Saksesparket

    Original language: Danish

    Cover image: Shutterstock

    Copyright © 2013, 2022 Daniel Zimakoff and SAGA Egmont

    All rights reserved

    ISBN: 9788726915600

    1st ebook edition

    Format: EPUB 3.0

    No part of this publication may be reproduced, stored in a retrievial system, or transmitted, in any form or by any means without the prior written permission of the publisher, nor, be otherwise circulated in any form of binding or cover other than in which it is published and without a similar condition being imposed on the subsequent purchaser.

    www.sagaegmont.com

    Saga is a subsidiary of Egmont. Egmont is Denmark’s largest media company and fully owned by the Egmont Foundation, which donates almost 13,4 million euros annually to children in difficult circumstances.

    KF Mezzi 3: Klippan

    Tómas: Tómas elskar að spila fótbolta. Það skiptir hann meira máli en nokkuð annað. Hann er góður að lesa leikinn, hann er snöggur og hann hefur gott hlaupaþol. Hann er ekki hrifinn af því að láta tækla sig. Hann dreymir um að verða atvinnumaður í FC Barcelona - eins og Messi.

    Sölvi: Sölvi æfir sig mjög mikið með boltanum í garðinum og er með hörku vinstri fót. Hann er alltaf jákvæður og skemmtilegur. Hann er nautsterkur, orkumikill og hann er litli bróðir besta leikmannsins, Kára.

    Bergur: Bergur er ótrúlega góður markmaður sem ver flest skot. Hann veit allt um fótbolta, þekkir öll liðin og veit hvernig þau spila. Eini gallinn er að hann þolir ekki að hlaupa og verður fljótt móður.

    1. kafli

    Boltinn kom í áttina til mín. Ég tók hann innanfótar og sparkaði fast. Stefnan var fullkomin, en ég hafði ekki miðað rétt svo hann fór lengst yfir markið.

    „Næstum því, Tómas," kallaði Kári. Eða var það pabbi? Þeir stóðu hlið við hlið. Ég vonaði bara að pabbi yrði ekki með neina stæla og færi að ráðleggja Kára. Ég flýtti mér aftur í vörnina.

    Fyrsti leikurinn okkar í deildinni var útileikur gegn Gjótuborgum síðustu helgi sumarfrísins.

    Zlatan var ekki með. Hann var í Króatíu í fríi. Sem betur fer var hann enn þá í liðinu. Pabba hans hafði þótt þetta virka vel. Zlatan var byrjaður að læra að hafa stjórn á skapi sínu.

    Kristín var í Mallorca. Okkur hefði ekki veitt af þeim báðum í dag. Það var fáránlegt að vera með leik áður en skólinn byrjaði.

    Við vorum marki undir og það voru aðeins tíu mínútur eftir af leiknum.

    Bergur náði að bjarga erfiðum bolta og sparkaði honum lengst út. Sölvi náði honum, rakti hann áfram, en var tæklaður áður en hann komst að markinu.

    Bara fimm mínútur eftir. Fjandinn. Ég hataði að tapa. Við þyrftum að

    Enjoying the preview?
    Page 1 of 1