Discover millions of ebooks, audiobooks, and so much more with a free trial

Only $11.99/month after trial. Cancel anytime.

Smásögur: Björn formaður
Smásögur: Björn formaður
Smásögur: Björn formaður
Ebook50 pages45 minutes

Smásögur: Björn formaður

Rating: 0 out of 5 stars

()

Read preview

About this ebook

Sagan fjallar um Björn, sem er formaður á Pollux, fiskibát Gunnars kaupmanns í Bláfirði. Þegar Björn missir bátinn sinn upp í skuldir kaupmannsins brennir hann bátinn og lendir í fangelsi, fullur af skömm. Honum hlotnast þó annað tækifæri þegar honum býðst nýr bátur en spurningin er hvort tilfinningarnar muni bera hann ofurliði á ný eða hvort honum takist að breyta rétt.Sögurnar sem eru hluti af smásagnasafni Davíðs Þorvaldssonar, eru: Björn formaður, Árni munkur, Skógarinn litli frá Villefranche-sur-mer, Veðmálið, Skólabræðurnir og Úr dagbók vinar, en bókina tileinkað hann móður sinni eftir andlát hennar. Bókin fékk mjög góða dóma á Íslandi og var því haldið fram að höfundur hefði einstaka innsýn í sálarlíf manna. Sögurnar bera allar stílbragð Davíðs, sem skrifaði listilega vel og í myndlíkingum sem krefjast þess að lesandi lesi milli línanna ásamt því að boðskapur sagnanna endurspegla oft tilfinningaríkar reynslur úr lífi höfundar.
LanguageÍslenska
PublisherSAGA Egmont
Release dateFeb 1, 2022
ISBN9788726960969

Read more from Davíð þorvaldsson

Related to Smásögur

Titles in the series (1)

View More

Related ebooks

Related categories

Reviews for Smásögur

Rating: 0 out of 5 stars
0 ratings

0 ratings0 reviews

What did you think?

Tap to rate

Review must be at least 10 words

    Book preview

    Smásögur - Davíð Þorvaldsson

    Davíð Þorvaldsson

    Smásögur

    Björn formaður

    SAGA Egmont

    Smásögur: Björn formaður

    Cover image: Shutterstock

    Copyright © 1929, 2021 Davíð Þorvaldsson and SAGA Egmont

    All rights reserved

    ISBN: 9788726960969

    1st ebook edition

    Format: EPUB 3.0

    No part of this publication may be reproduced, stored in a retrievial system, or transmitted, in any form or by any means without the prior written permission of the publisher, nor, be otherwise circulated in any form of binding or cover other than in which it is published and without a similar condition being imposed on the subsequent purchaser.

    www.sagaegmont.com

    Saga is a subsidiary of Egmont. Egmont is Denmark’s largest media company and fully owned by the Egmont Foundation, which donates almost 13,4 million euros annually to children in difficult circumstances.

    Minningu

    móður minnar

    tileinka jeg

    þessa bók.

    Höfundur.

    Björn formaður.

    Björn var formaður á Pollux, bát Gunnars kaupmanns í Bláfirði. Björn var Árnason. Var sá Árni annálaður aflamaður á sinni tíð, en fórst við þriðja mann, þegar Björn var á tólfta ári.

    Björn hafði það af föður sínum að vera fiskinn. Þegar í bernsku fór hann að leggja línu á Skjónu, gömlum, bikuðum bát, sem bryggjumenn Gunnars notuðu til þess að leggja vjelabátunum og fara á netin.

    Björn var þá á „planinu", sem svo var kallað, og fjekst oftast við að þvo fiskinn upp úr stömpunum, þegar búið var að fletja hann. Lagði hann línu sina á morgnana og fór svo með um miðjan daginn. Gerði hann að aflanum og saltaði heima við hús sitt. Afli hans nægði oftast fjölskyldunni yfir veturinn.

    Björn var þegar í æsku þrekinn og herðabreiður. Andlitið var mjög reglulegt. Ennið var breitt, en ekki hátt. Augun voru stálblá og harðleg og urðu með aldrinum hálfhulin undir loðnum og þykkum augnabrúnum. Hárið var kolsvart, en hann hærðist snemma. Á vinstra gagnauganu var stórt ör, sem aldrei hvarf. Hann hafði meitt sig þannig á unglingsárunum, er hann hrapaði úr klettum, þegar hann var að klifra í þeim með fjelögum sínum.

    Björn var skapstór og ráðríkur. Hann var svo hugrakkur, að á unga aldri var hann kallaður gapi; seinna varð hann gætnari, en var þó altaf áræðnasti formaðurinn þar um slóðir. Hann var fljótur til reiði, en sáttfús. Hann var hreinskilinn og orðheldinn. Það fór orð af því þar í þorpinu, hvað hann væri fámáll.

    Hann var kvæntur Unni frá Svartagerði, þar út með sjónum. Hún var hávaxin, lotin í herðum og þegjandaleg. Þau áttu eina dóttur á unga aldri, sem kölluð var Gulla.

    Björn var kominn á fimtugsaldur, þegar saga þessi gerðist. Hann hafði þá verið fimtán ár formaður hjá Gunnari kaupmanni.

    Þykir nú rjett að lýsa þorpinu í Bláfirði með fáeinum orðum.

    Það stendur á sendnum melum við botninn á firðinum. Fyrir ofan það gnæfir hátt og þungbúið blágrýtisfjall, grafið sundur af giljum. Í þeim eru hvammar, vaxnir berjalyngi og hvönn á sumrum. Á sunnudögum sjást þar hjer og hvar krakkar með berjafötur, og ómurinn af kátínu þeirra berst niður í kyrlátt þorpið.

    Fullorðna fólkið fer þangað lika oft á helgidögum með rjúkandi kaffikönnur, bolla og sætabrauð, bundið inn í snjóhvíta dúka.

    Það var kallað að fara í „skógartúr", og þó er þar ekki einu sinni víðihrísla, aðeins geirar af rauðleitu og grænu lyngi, sem nær vel í skóvarp. Á milli giljanna eru melar með gisnum punti og holtasóleyjum hjer og hvar.

    Húsin standa óskipulega í þorpinu, nema við aðalgötuna niður við sjóinn. Þau eru flest lítil og ómáluð; nokkur eru tjörguð. Þó eru þar tvö falleg og myndarleg hús, sem sje hús læknisins á balanum sunnan við Álftalæk, og hús Gunnars kaupmanns rjett niður við sjóinn. Það er hvítmálað með stórri burst á framhliðinni. Framundan því er uppfylling og út frá henni liggur rambygð hafskipabryggja. Báðum megin við hana eru breiðir fiskpallar, þar sem vjelabátar Gunnars leggjast að, og þar sem gert er að aflanum.

    Gunnar var mjög vinsæll

    Enjoying the preview?
    Page 1 of 1