Discover millions of ebooks, audiobooks, and so much more with a free trial

Only $11.99/month after trial. Cancel anytime.

Skýrsla X - Gröfin
Skýrsla X - Gröfin
Skýrsla X - Gröfin
Ebook47 pages30 minutes

Skýrsla X - Gröfin

Rating: 0 out of 5 stars

()

Read preview

About this ebook

Í Gröfinni velja Andrés og Kalli að kafa dýpra í mál sem á sér stað í kirkjugarðinum. Á 13. degi hvers mánaðar, eru grafhýsin opnuð um miðjar nætur. Strákanir ákveða að koamst að því hverjir, eða hvað það er sem liggur að baki. Eru grafhýsin opnuð að neðan? Eða á nóttunni? Þegar Andrés og Kalli eru komnir nálægt því að leysa málið eru þeir grafnir í svörum sem gerir þeim erfitt fyrir að anda.Í öskunni í brenndu húsi rannsóknarlögreglumannsins Madsen finnur Andrés gamlan málmkassa. Þar er að finna fullt af gömlum skýrslum. Þetta eru óleyst mál sem Madsen hefur kannað en nú er hann dáinn.Sögurnar í "Skýrsla X" fjalla um Andrés og Kalla vin hans, sem ákveða að taka nokkrar skýrslurnar í sínar eigin hendur og reyna að rannsaka og leysa gömlu sakamálin.
LanguageÍslenska
PublisherSAGA Egmont
Release dateNov 9, 2020
ISBN9788726637700

Related to Skýrsla X - Gröfin

Titles in the series (8)

View More

Related ebooks

Reviews for Skýrsla X - Gröfin

Rating: 0 out of 5 stars
0 ratings

0 ratings0 reviews

What did you think?

Tap to rate

Review must be at least 10 words

    Book preview

    Skýrsla X - Gröfin - Kit A. Rasmussen

    Kit A. Rasmussen

    Skýrsla X

    Gröfin

    SAGA

    Skýrsla X: Gröfin

    Original title: Journal X: Graven

    Copyright © 2021 Kit A. Rasmussen and SAGA Egmont, Copenhagen

    Translated by: HMH

    All rights reserved

    ISBN: 9788726637700

    1. E-book edition, 2021

    Format: EPUB 3.0

    All rights reserved. No part of this publication may be reproduced, stored in a retrieval system, or transmitted, in any form or by any means without the prior written permission of the publisher, nor, be otherwise circulated in any form of binding or cover other than in which it is published and without a similar condition being imposed on the subsequent purchaser.

    Skýrsla X

    Gröfin

    Brunalyktin er svo sterk að Andrés svíður í nefið. Hann lítur í kringum sig. Það er ekki nokkur sála á ferli. Gatan er auð og dimm. Hann smeygir sér undir rauða og hvíta lögregluborðann. Hann er strengdur allt í kringum húsið hans Madsens. Eða það sem eftir er af því.

    Næstum allt er brunnið til ösku.

    „Aðgangur bannaður" stendur á stóru gulu skilti.

    Bakvið húsið finnur hann stóran gám með alls konar rusli. Hann tekur prik og rótar svolítið í því. Oj, hvílík fýla! Sótug föt, bækur, brotið gler …hálfbrunninn sófi. Ætli þau hafi fundið líkið af Madsen þar? Pabbi Kalla hafði minnst eitthvað á íkveikju og morð. En hvílíkt rugl! Eins og einhver hefði viljað myrða Madsen! Þennan skrítna, gamla fausk. Hann rótar svolítið meira.

    Þetta er í rauninni bara haugur af rusli. Ekkert spennandi. Hann er í þann veginn að fara þegar hann rekur augun í járnkassa. Hann er allur dældaður. „EINKAMÁL" stendur utan á honum. Bingó! Andrés þarf að klifra alveg upp í gáminn til að ná honum. Hann rífur sig á nagla. Fjandinn!

    Andrés opnar kassann. Hann er fullur af möppum og blöðum. Prentuðum blöðum með handskrifuðum athugasemdum. Hann kveikir ljósið á símanum og skoðar þau. „Skýrsla 46 stendur á þykkri möppu. „89 stendur á annarri. Þetta eru lögregluskýrslur. Það passar. Madsen var rannsóknarlögreglumaður. Hann opnar eina möppuna.

    Á forsíðunni er stimplað: „TRÚNAÐARMÁL". Vá! Hann getur varla beðið eftir að sýna Kalla hvað hann hefur fundið.

    1. Kafli

    „Þrettándi er á föstudaginn."

    „Já, er það?" lítur niður á danska stílinn sem hefur ekki enn skrifað sig sjálfur.

    „Ætlarðu ekki að koma í heimsókn þá?"

    Kalli slær nokkur orð inn. Eyðir þeim aftur.

    „Jú, örugglega. Eitthvað sérstakt?"

    „Ég ætla að finna nokkrar hryllingsmyndir. Það verður líka fullt tungl."

    „Fullkomið," segir Kalli og slekkur á tölvunni.

    „Þessi stíll …"

    „Ég er ekki búinn með hann, segir Andrés. „Ég geri það um helgina.

    „En við eigum að

    Enjoying the preview?
    Page 1 of 1