Discover millions of ebooks, audiobooks, and so much more with a free trial

Only $11.99/month after trial. Cancel anytime.

Skýrsla X - Mótorhjólagengið
Skýrsla X - Mótorhjólagengið
Skýrsla X - Mótorhjólagengið
Ebook41 pages27 minutes

Skýrsla X - Mótorhjólagengið

Rating: 0 out of 5 stars

()

Read preview

About this ebook

Mótorhjólagengið segir frá því þegar Andrés og Kalli sökkva sér í gamalt mál og hefja rannsókn á morðinu á Nikki Hansen, sem var meðlimur í mótorhjólagenginu Crazy Devils. Málið dregur vinina tvo inn í myrkan heim mótorhjólagengisins og þeir þurfa að komast að því hver lýgur og hver er að segja satt.Í öskunni í brenndu húsi rannsóknarlögreglumannsins Madsen finnur Andrés gamlan málmkassa. Þar er að finna fullt af gömlum skýrslum. Þetta eru óleyst mál sem Madsen hefur kannað en nú er hann dáinn.Sögurnar í "Skýrsla X" fjalla um Andrés og Kalla vin hans, sem ákveða að taka nokkrar skýrslurnar í sínar eigin hendur og reyna að rannsaka og leysa gömlu sakamálin.
LanguageÍslenska
PublisherSAGA Egmont
Release dateNov 9, 2020
ISBN9788726637724

Related to Skýrsla X - Mótorhjólagengið

Titles in the series (8)

View More

Related ebooks

Reviews for Skýrsla X - Mótorhjólagengið

Rating: 0 out of 5 stars
0 ratings

0 ratings0 reviews

What did you think?

Tap to rate

Review must be at least 10 words

    Book preview

    Skýrsla X - Mótorhjólagengið - Peter Grønlund

    Peter Grønlund

    Skýrsla X

    Mótorhjólagengið

    SAGA

    Skýrsla X: Mótorhjólagengið

    Original title: Journal X: Rockerdrabet

    Copyright © 2021 Peter Grønlund and SAGA Egmont, Copenhagen

    Translated by: HMH

    All rights reserved

    ISBN: 9788726637977

    1. E-book edition, 2021

    Format: EPUB 3.0

    All rights reserved. No part of this publication may be reproduced, stored in a retrieval system, or transmitted, in any form or by any means without the prior written permission of the publisher, nor, be otherwise circulated in any form of binding or cover other than in which it is published and without a similar condition being imposed on the subsequent purchaser.

    Skýrsla X

    Mótorhjólagengið

    Brunalyktin er svo sterk að Andrés svíður í nefið. Hann lítur í kringum sig. Það er ekki nokkur sála á ferli. Gatan er auð og dimm. Hann smeygir sér undir rauða og hvíta lögregluborðann. Hann er strengdur allt í kringum húsið hans Madsens. Eða það sem eftir er af því.

    Næstum allt er brunnið til ösku.

    „Aðgangur bannaður" stendur á stóru gulu skilti.

    Bakvið húsið finnur hann stóran gám með alls konar rusli. Hann tekur prik og rótar svolítið í því. Oj, hvílík fýla! Sótug föt, bækur, brotið gler …hálfbrunninn sófi. Ætli þau hafi fundið líkið af Madsen þar? Pabbi Kalla hafði minnst eitthvað á íkveikju og morð. En hvílíkt rugl! Eins og einhver hefði viljað myrða Madsen! Þennan skrítna, gamla fausk. Hann rótar svolítið meira.

    Þetta er í rauninni bara haugur af rusli. Ekkert spennandi. Hann er í þann veginn að fara þegar hann rekur augun í járnkassa. Hann er allur dældaður. „EINKAMÁL" stendur utan á honum. Bingó! Andrés þarf að klifra alveg upp í gáminn til að ná honum. Hann rífur sig á nagla. Fjandinn!

    Andrés opnar kassann. Hann er fullur af möppum og blöðum. Prentuðum blöðum með handskrifuðum athugasemdum. Hann kveikir ljósið á símanum og skoðar þau. „Skýrsla 46 stendur á þykkri möppu. „89 stendur á annarri. Þetta eru lögregluskýrslur. Það passar. Madsen var rannsóknarlögreglumaður. Hann opnar eina möppuna.

    Á forsíðunni er stimplað: „TRÚNAÐARMÁL". Vá! Hann getur varla beðið eftir að sýna Kalla hvað hann hefur fundið.

    1. Kafli

    Þetta er besti dagur vikunnar. Og besti tíminn. Það er föstudagur, búið að hringja út úr hundleiðinlegum tíma og nú bíður frábær löng helgi framundan. Án skóla. Án kennara. Það verður ekki mikið betra!

    Andrés og Kalli

    Enjoying the preview?
    Page 1 of 1