Discover millions of ebooks, audiobooks, and so much more with a free trial

Only $11.99/month after trial. Cancel anytime.

Skýrsla X - Kjallarinn
Skýrsla X - Kjallarinn
Skýrsla X - Kjallarinn
Ebook43 pages27 minutes

Skýrsla X - Kjallarinn

Rating: 0 out of 5 stars

()

Read preview

About this ebook

Morð hefur átt sér stað í kjallara skólans. Lísa Petersen, ljúfa þrifakona skólans, fannst þar látin. Málið hefur aldrei verið leyst og því ákveða Andrés og Kalli að komast að því hvað hefur gerst. En hver gæti hugsað sér að drepa Lísu? Og hvaða banvæna leyndarmál vissi Lísa?Í öskunni í brenndu húsi rannsóknarlögreglumannsins Madsen finnur Andrés gamlan málmkassa. Þar er að finna fullt af gömlum skýrslum. Þetta eru óleyst mál sem Madsen hefur kannað en nú er hann dáinn.Sögurnar í "Skýrsla X" fjalla um Andrés og Kalla vin hans, sem ákveða að taka nokkrar skýrslurnar í sínar eigin hendur og reyna að rannsaka og leysa gömlu sakamálin.
LanguageÍslenska
PublisherSAGA Egmont
Release dateNov 9, 2020
ISBN9788726637670

Related to Skýrsla X - Kjallarinn

Titles in the series (8)

View More

Related ebooks

Reviews for Skýrsla X - Kjallarinn

Rating: 0 out of 5 stars
0 ratings

0 ratings0 reviews

What did you think?

Tap to rate

Review must be at least 10 words

    Book preview

    Skýrsla X - Kjallarinn - Peter Grønlund

    Peter Grønlund

    Skýrsla X

    Kjallarinn

    SAGA

    Skýrsla X: Kjallarinn

    Original title: Journal X: Kælderrummet

    Copyright © 2021 Peter Grønlund and SAGA Egmont, Copenhagen

    Translated by: HMH

    All rights reserved

    ISBN: 9788726638028

    1. E-book edition, 2021

    Format: EPUB 3.0

    All rights reserved. No part of this publication may be reproduced, stored in a retrieval system, or transmitted, in any form or by any means without the prior written permission of the publisher, nor, be otherwise circulated in any form of binding or cover other than in which it is published and without a similar condition being imposed on the subsequent purchaser.

    Skýrsla X

    Kjallarinn

    Brunalyktin er svo sterk að Andrés svíður í nefið. Hann lítur í kringum sig. Það er ekki nokkur sála á ferli. Gatan er auð og dimm. Hann smeygir sér undir rauða og hvíta lögregluborðann. Hann er strengdur allt í kringum húsið hans Madsens. Eða það sem eftir er af því.

    Næstum allt er brunnið til ösku.

    „Aðgangur bannaður" stendur á stóru gulu skilti.

    Bakvið húsið finnur hann stóran gám með alls konar rusli. Hann tekur prik og rótar svolítið í því. Oj, hvílík fýla! Sótug föt, bækur, brotið gler …hálfbrunninn sófi. Ætli þau hafi fundið líkið af Madsen þar? Pabbi Kalla hafði minnst eitthvað á íkveikju og morð. En hvílíkt rugl! Eins og einhver hefði viljað myrða Madsen! Þennan skrítna, gamla fausk. Hann rótar svolítið meira.

    Þetta er í rauninni bara haugur af rusli. Ekkert spennandi. Hann er í þann veginn að fara þegar hann rekur augun í járnkassa. Hann er allur dældaður. „EINKAMÁL" stendur utan á honum. Bingó! Andrés þarf að klifra alveg upp í gáminn til að ná honum. Hann rífur sig á nagla. Fjandinn!

    Andrés opnar kassann. Hann er fullur af möppum og blöðum. Prentuðum blöðum með handskrifuðum athugasemdum. Hann kveikir ljósið á símanum og skoðar þau. „Skýrsla 46 stendur á þykkri möppu. „89 stendur á annarri. Þetta eru lögregluskýrslur. Það passar. Madsen var rannsóknarlögreglumaður. Hann opnar eina möppuna.

    Á forsíðunni er stimplað: „TRÚNAÐARMÁL". Vá! Hann getur varla beðið eftir að sýna Kalla hvað hann hefur fundið.

    1. Kafli

    Það er laugardagur og foreldrar Andrésar eru að fara út að skemmta sér. Þau koma seint heim. Sem betur fer kemur Kalli og gistir hjá honum. Það er auðvitað ekki af því

    Enjoying the preview?
    Page 1 of 1