Discover millions of ebooks, audiobooks, and so much more with a free trial

Only $11.99/month after trial. Cancel anytime.

Smásögur I-II
Smásögur I-II
Smásögur I-II
Ebook185 pages2 hours

Smásögur I-II

Rating: 0 out of 5 stars

()

Read preview

About this ebook

Hér birtast tíu smásögur Jóns Trausta frá árunum 1905 - 1910.
Friðrik áttundi, Tvær Systur, Á Fjörunni, Sigurbjörn Sleggja, Strandið á Kolli, Gráfeldur, Bleiksmýrar Verksmiðjan - fjögur sendibréf, Stjórnarbylting, Blái Dauðinn - saga frá 18. Öld og Þegar ég var á Fregátunni. Sögurnar eru margar sögulegar, segja frá ævintýrum í íslenskum sveitum og samlífi manns og náttúru.
LanguageÍslenska
PublisherSAGA Egmont
Release dateNov 30, 2023
ISBN9788728281666
Smásögur I-II

Related to Smásögur I-II

Titles in the series (14)

View More

Related ebooks

Related categories

Reviews for Smásögur I-II

Rating: 0 out of 5 stars
0 ratings

0 ratings0 reviews

What did you think?

Tap to rate

Review must be at least 10 words

    Book preview

    Smásögur I-II - Jón Trausti

    Smásögur I-II

    Cover image: Unsplash, public domain

    Copyright © 2023 SAGA Egmont

    All rights reserved

    ISBN: 9788728281666

    1st ebook edition

    Format: EPUB 3.0

    No part of this publication may be reproduced, stored in a retrieval system, or transmitted, in any form or by any means without the prior written permission of the publisher, nor, be otherwise circulated in any form of binding or cover other than in which it is published and without a similar condition being imposed on the subsequent purchaser.

    www.sagaegmont.com

    Saga is a subsidiary of Egmont. Egmont is Denmark’s largest media company and fully owned by the Egmont Foundation, which donates almost 13,4 million euros annually to children in difficult circumstances.

    ,FRIÐRIK ÁTTUNDI‘

    Friðrik ,áttundi‘ var ekki konungur, þótt nafnið hljóði óneitanlega konunglega. Hann var ekki einu sinni fjallskilakóngur. Engum óvitlausum manni hefði dottið í hug að kjósa hann eða skipa til annarrar eins tignar.

    Hann var kallaður Friðrik áttundi af því að hann var áttundi maðurinn, sem skipaður var árlega í fjallgöngunum til þess að ganga í Búrfellsheiðina. Raunar voru aldrei skipaðir nema sjö menn til að smala þann hluta afréttarinnar, en síðan Friðrik komst upp og fór að taka þátt í fjallgöngunum, var honum ævinlega bætt við töluna þar.

    Það kom ekki til af góðu, því miður.

    Það kom til af því, að enginn leitarforingjanna vildi hafa Friðrik í sinni sveit. Alls staðar var honum ofaukið, og alls staðar var amazt við honum. Samt gat ekki komið til nokkurra mála að senda hann heim til sín aftur og heimta annan mann af húsbónda hans, því að hvar sem á Friðrik var litið, varð því með engu móti neitað, að hann var „fullkominn" maður.

    Svo var ævinlega samþykkt með öllum atkvæðum samhljóða, að Friðrik skyldi vera áttundi maðurinn í Búrfellsheiðinni. Sumir gerðu það af því, að þar álitu þeir einna minnsta þörf á manni í viðbót; aðrir af gagnstæðum ástæðum.

    En hvað sem þessu leið, nú var Friðrik svo gamall sem á grönum mátti sjá og hafði að minnsta kosti um heilan mannsaldur verið áttundi maðurinn í Búrfellsheiðinni í öllum göngum.

    Friðrik var mikill maður vexti, burðamaður mikill og heilsugóður, en dæmalaust hægfara. Hann var hverjum manni þægari og lundbetri, en alveg einstök liðleskja til allra verka. Það var kennt sérhlífni, því að skrokkurinn á honum þótti bera það með sér, að hann væri baggafær, ef því væri að skipta.

    Oft var það talið efamál, hvort hann hefði meðalverksvit. En þegar leitað var atkvæða um það, beinlínis eða óbeinlínis, voru þeir ætíð fleiri, sem álitu Friðrik „með óskertu viti eða „ekki beinlínis hálfvita. Þess vegna var hann aldrei sendur heim úr göngunum, þótt hann væri þar sjaldan til annars en vandræða.

    Friðrik vissi það ofur vel, að hann var talinn heimskur, og kærði sig kollóttan. Hann vissi líka, að hverjum einasta manni í sveitinni var það fullkunnugt, að hann hafði verið fermdur upp á Faðirvorið, og ef til vill hitt líka, að hann var nú fyrir löngu búinn að týna þessu Faðirvori niður. En þetta lá honum í léttu rúmi.

    En athugulir menn, sem Friðriki voru nákunnugir, höfðu einnig tekið eftir því, að Friðrik gat stöku sinnum komið laglega fyrir sig orði. Og eins hinu, að þegar hann hafði gert einhverja heimskuna og verið var að setja ofan í við hann, þá setti hann upp svo sauðheimskulegt andlit og svaraði svo flónslega, að varla var annað unnt en hlæja að honum.

    Þó var víst enginn, sem áleit Friðrik greindan. Það mesta, sem menn gátu fengið af sér að segja í því efni, var það, að hann „vissi sínu viti". En í því lá nokkur íbyggni.

    Þrátt fyrir allt var Friðrik vel kynntur á heimili sínu. Þar hafði hann verið mestalla ævina og gengið að erfðum frá föður til sonar, eins og aðrir stólpagripir búsins. Húsbónda sinn elskaði hann eins og föður, og mestur fögnuður hans var það, ef hann gat gert honum einhverja óvænta glaðning. —

    Friðrik var skrítinn í útliti. Allajafna gekk hann lotinn, tautaði þá eitthvað fyrir munni sér og agðaðist áfram svo hægt og gætilega, að það var orðið að orðtæki, að miða mætti við hann sólina. Andlitið var skolbrúnt á hörund og ætíð óhreint, því að Friðrik þvoði sér sjaldan. Hann hafði kjálkaskegg, en rakaði stundum allt hitt skeggið af sér. Þess á milli var hann kafloðinn upp undir augu. Að öðru leyti hirti hann ekki mikið um útganginn á sér; það gerði vinnukonan, sem þjónaði honum.

    Oft var lítið gagn að Friðrik á heimilinu, því ef honum var verkið eitthvað ógeðfellt, þá var ekki hugsandi til, að hann hefði vit á að vinna það. En sum verk vann hann með góðu geði, og þá skorti hann ekki vit. Og eitt gagn hafði heimilið þó að minnsta kosti af honum: Það var hægt að láta hann fara í göngurnar og þannig hægt að spara fullorðinn mann í marga daga. Sú ferð var honum ekki ógeðfelld.

    Annað mál var það, hversu geðfellt fjallskilakónginum og leitarmönnum hans hefir verið það að fá Friðrik í göngurnar haust eftir haust, þótt þeir yrðu að láta við svo búið standa.

    Allir lifandi menn vissu, að Friðrik gerði sáralítið gagn í Búrfellsheiðinni — og því minna sem verr var farið að honum. Hann var látinn rölta út miðja heiðina, og var honum sýnd stefnan, áður en skilið var við hann. Og stefnunni hélt hann trúlega, — labbaði út heiðina í hægðum sínum, niðurlútur, með hendurnar á bakinu, talaði við sjálfan sig og leit hvorki til hægri né vinstri. Ef kindur urðu á leið hans, þá lofaði hann þeim að labba á undan sér, ef þær vildu þá eiga samleið. En sjaldan gerði hann sér mikið far um að eltast við þær.

    Þótt óneitanlega væri gætilega farið, kom það þó sjaldan fyrir, að allt gengi að óskum. Oft týndist hann, og þurfti þá að senda menn til að leita að honum eins og hverjum öðrum sauð. Venjulega var þá ekki annað að en það, að honum hafði orðið leiðin sporadrjúg. Stundum hafði hann þá setzt niður að hvíla sig, — en gleymt að standa upp aftur. — —

    Í það skipti, sem hér segir frá, var Friðrik sem oftar staddur í fjallgöngum. Það voru ekki fyrstu göngur, heldur eftirleitir eða, eins og kallað er á Norðurlandi, aðrar göngur.

    Þeir Búrfellsheiðarsmalarnir lögðu á stað síðari hluta dags fram að sæluhúskofa, sem var á heiðinni, til að hafa þar náttstað. Þeir voru sjö saman að vanda — og Friðrik sá áttundi.

    Rosar höfðu gengið í marga daga með krepjum og rigningum og óvenjumiklum kulda. Það var því ekkert tilhlökkunarefni að eiga að smala Búrfellsheiðina daginn eftir.

    Þeir voru því allir í heldur stirðu skapi, þegar þeir lögðu á stað, nema Friðrik. Hann var með sama jafnaðargeðinu sem ætíð og varð ekki uppvægur, þótt geðvonzka hinna bitnaði á honum. Það var líka kuldi og beygur í öllum nema honum; honum stóð nokkurn veginn á sama um veðráttuna.

    Búrfellsheiðin er breið og mikil afréttartunga, sem öðrum megin takmarkast af jökulsá, en hinum megin af háum fjallgarði, og liggur æðilangt fram af byggðinni. Hún er að vísu fjallalaus að mestu, en full af ásum og smáhryggjum og flóum og mýrasundum á milli, svo að það er fremur ógreiðfært um hana og þykir vandleitað.

    Á miðri heiðinni gnæfir Búrfell, hátt og hrikalegt. Það er fjallhryggur af svipaðri gerð eins og flest fjöll eru hér á landi, með bröttum hlíðum, nokkuð klettóttum og mjög sandrunnum. Kollóttir melar eru hið efra, sem fara smálækkandi inn af því, inn í óbyggðir. Norðvesturendinn er hæstur, snarbrattur með klettaeggjum efst, en mýrarflói neðan undir með rótleysiskeldum. Það er þetta fell, sem heiðin dregur nafn af.

    — — Það var síður en vistlegt í kofanum um nóttina. Leitarmennirnir bjuggu þar um sig eftir föngum, borðuðu af nesti sínu og lögðu sig svo fyrir. Þeir voru holdvotir og hraktir og skulfu af kulda, því að kofinn skýldi þeim hvorki fyrir storminum né regninu, svo að til hlítar væri. Þeim varð því ekki svefnsamt — nema Friðrik. Hann sofnaði undireins og hraut svo hátt, að það eitt út af fyrir sig hefði verið nóg til þess, að enginn hefði sofnað.

    Veðrið hafði versnað með kvöldinu og farið að snjóa.

    Í lýsingu um morguninn vöknuðu þeir allir nema Friðrik. Hann svaf svo fast, að þeim veitti fullerfitt að vekja hann.

    Þá var hætt að snjóa, en veðrið hrákalt og jörðin hvít af snjó. En það leit út fyrir gott veður með deginum.

    Þeir lögðu á stað fram eftir heiðinni og gengu hvatlega, til þess að hafa úr sér hrollinn. Friðrik átti bágt með að fylgja þeim eftir og dróst stundum aftur úr. Þeir þorðu þó ekki að fara svo langt á undan honum, að þeir misstu sjónar af honum. Þeir vissu, að hann var þá vís til að snúa aftur.

    Þeir biðu því eftir honum, að minnsta kosti þangað til þeir gætu sent honum tóninn.

    Friðrik gekk í hægðum sínum, smábrosandi, og skeytti því ekki vitund, þótt hottað væri á hann.

    — — Þessi dagur var einn af þeim undur fögru haustdögum, sem oft koma hér á landi, einkum uppi á heiðum og í óbyggðum. Loftið var svipmikið og rosalegt. Miklir skýjaklakkar sigldu fyrir morgunvindinum, sem nú var stöðugt að lægja. Þessir miklu flókajötnar sveipuðust hver eftir annan ljómandi gyllingu, þegar sólin kom upp. En undan sól voru þeir dimmbláir og ferlegir yfirlitum. Hversu brúnamiklir sem þeir voru og ribbaldalegir, voru þeir þó allir sneypulegir og voru að smáhniprast saman. Þeir voru á undanhaldi; höfðu beðið ósigur fyrir blíðviðrinu, sem nú hélt velli. Valdi þeirra yfir þessum bletti jarðarinnar var nú lokið að sinni. Þeir höfðu gengið fram af sér síðustu nóttina.

    Sólin hækkaði á lofti, og skinið var tvöfalt bjartara og hlýrra eftir rosann. Það var sem geislaflóðinu ykist ljósmagn og ylur um helming við það að brjótast fram um glufurnar milli hinna dimmu skýjabjarga. En glufurnar stækkuðu, og sólarinnar naut betur og betur. Þegar fram kom um hádegið, var himinninn því nær orðinn alheiður. Þá var ekki annað eftir af öllum rosabúningnum en lítilfjörlegar, ljósgráar flókadrefjar, sem voru að hverfa niðri við sjóndeildarhringinn.

    Fjöllin voru gráhvít um morguninn, og snjórinn lá í flygsum ofan á fjalldrapanum og víðinum í Búrfellsheiðinni, sem enn stóð með öllu laufi sínu. Þegar fram á daginn kom, þiðnaði fölið fyrir sólskininu og varð að stórum vatnsdropum. Þeir glitruðu eins og skyggðir gimsteinar, og laufið skalf undir þeim. Svo hrundu þeir niður hver eftir annan og hurfu ofan í jörðina.

    Grasið var blautt allan daginn með skírum litum og sterkum ilm. Það var eins og það hefði yngzt upp í illviðrinu. En bláberjunum og krækiberjunum hafði verið of mikið boðið. Þau höfðu vaxið yfir sig í rosanum og héngu eins og stórir belgir á lynginu sínu, en sprungu og urðu að blárauðum blettum, hve lítið sem við þau kom.

    Búrfellsheiðin var alsett hvítum dílum fram eftir deginum, og leitarmennirnir kvörtuðu yfir því, að illt væri sýnið vegna hraflsins. En heiðin var fögur í þessum nýstárlega búningi. Það var sem hvít knipplingaslæða væri þanin yfir hana alla. En „knipplingunum" smáfækkaði; og undir kvöldið sáust ekki hvítir dílar nema uppi undir eggjunum á Búrfellinu og í stöku giljum.

    — — Leitarmennirnir gengu nú fram eftir heiðinni, allt að afréttamörkum. Þar skiptu þeir heiðinni á milli sín.

    Þeir sýndu nú Friðrik stefnuna. Hann átti að ganga út miðheiðina og vestan í Búrfellið. Auðvitað átti hann að taka það með sér, sem hann fyndi af geldfé, og eins hitt, sem hinir leitarmennirnir kynnu að reka í veg fyrir hann. Að öðru leyti mátti hann halda beint.

    Svo áttu þeir að hittast aftur um kvöldið hjá sæluhúskofanum, þar sem þeir höfðu verið um nóttina.

    Friðrik fékk að lokum stranga áminningu um að halda vel áfram, hafa augun opin og svíkjast ekki um. Þeim, sem næstir honum voru til beggja handa, var falið að gefa honum auga.

    Hann jánkaði þessu öllu með mestu stillingu; hann var orðinn því svo vanur. Síðan þrammaði hann á stað út heiðina. Hrópin og brýningarnar dundu á eftir honum.

    Hinir skildu líka og dreifðu sér um heiðina.

    Undir kvöldið komu þeir aftur saman hjá kofanum, eins og ráð var fyrir gert. Þeir voru að smátínast þangað, þar til þeir voru komnir sjö, en — þann áttunda vantaði. Það var Friðrik.

    Þeir höfðu fundið heldur fátt fé um daginn, færra en vant var í öðrum göngum í Búrfellsheiðinni. Þeir voru því hálfhræddir um, að hinum leitarmönnunum mundi þykja linlega smalað og þeir gefa það í skyn með beiskum gamanyrðum, — ekki sízt ef þeir kæmu svo til byggða, að Friðrik „áttunda" vantaði.

    Þeir voru því ekki í góðu skapi.

    Glaða sólskin hafði verið allan daginn og mikill hiti. Nú var komið kvöld, og leit út fyrir fegursta veður um nóttina.

    En Friðrik kom ekki.

    Þeir fóru að undrast um hann og bera sig saman um, hvernig á þessu mundi standa. Það var þó óhugsandi, að karlinn hefði villzt í glaða sólskininu! Þeir höfðu séð til hans við og við alla leið út að Búrfellinu, en aldrei eftir það. Ekki gat það verið, að hann hefði farið sér að voða. Þar voru engar hættur til fyrir fullorðinn karlmann. Nema ef hann hefði álpazt fram af hömrunum í Búrfellinu.

    En hvað gat þá verið orðið um hann?

    Að hann væri að stríða við geldfé, sem hann hefði fundið á heiðinni? Þetta gat verið, en þó brostu þeir allir að tilgátunni. Friðrik var ekki vanur að eltast lengi við styggar kindur. Að hann hefði sett sig niður og gleymt að standa upp —?

    Að minnsta kosti kom hann ekki.

    Sólin var gengin undir og farið að bregða birtu. Geldféð var lagzt í dældinni fyrir neðan kofann og jórtraði í makindum. Sumt af því var orðið þreytt eftir reksturinn um daginn.

    Veðrið var kyrrt og kvöldið friðsælt og fagurt. Búrfell var óvanalega „æruverðugt", þar sem það gnæfði yfir heiðina sína, eldrautt af kvöldskininu.

    En ekki kom Friðrik.

    Nú var alveg gengið fram af félögum hans. Þeir voru hættir öllum getum, en stóðu og horfðu og hlustuðu.

    En ekkert heyrðist, ekkert — ekki svo

    Enjoying the preview?
    Page 1 of 1