Discover millions of ebooks, audiobooks, and so much more with a free trial

Only $11.99/month after trial. Cancel anytime.

Samtíningur
Heiðarbýlið
Halla
Ebook series14 titles

Jón Trausti: Ritsafn I-VIII

Rating: 0 out of 5 stars

()

About this series

"Guð fylgi ykkur strönd af strönd.
Vér stráum kveðjum yfir sæinn
og leggjum íslenzk ljóð í blæinn,
sem ber þau yfir ykkar lönd."
Sagnir, ævintýr og dýrasögur er samansafn ljóða, smásagna og annarra texta eftir Jón Trausta (1873 - 1918). Í þessu textasafni eru t.d. bókadómar eftir hann. Textasafnið hentar sérstaklega bókmenntaunnendum og gefur góða innsýn inn í sögu íslenskra bókmennta.
LanguageÍslenska
PublisherSAGA Egmont
Release dateNov 23, 2023
Samtíningur
Heiðarbýlið
Halla

Titles in the series (14)

  • Halla

    1

    Halla
    Halla

    "Og Halla var efni í búkonu. En það fer svo margur efniviðurinn öðruvísi en ætlast var til á þessu landi." Halla er fyrsta bindið í ritröðinni Halla og Heiðarbýlið. Þessar skáldsögur Jóns Trausta eru meðal vinsælustu framhaldssagna íslenskrar bókmenntasögu og nutu þær mikilla vinsælda þegar þær komu út snemma á 20. Öldinni. Halla er af mörgum talin fyrsta metsölubók Íslands. Hér segir frá fólkinu á Heiðarbýli, afkomu þeirra, fjölskyldusögu og örlögum. Sagan á vel við lesendur Guðrúnar frá Lundi, aðdáendur hússins á sléttunni og alla lesendur sem una sér vel við að lesa sögulegar skáldsögur eða hvers kyns yndislestur frá fyrri öldum.

  • Samtíningur

    3

    Samtíningur
    Samtíningur

    "Allir vissu að þessi langi Jónsbókarlestur, með tilheyrandi sálmasöng og bæna, var síðasta þrautin, síðasta járnhurðin, sem lyfta þurfti, áður en gengið var inn í jólagleðina." Í þessu smásagnasafni má finna verk eftir Jón Trausta sem birtust hér og þar yfir mörg ár. Sögur úr tímaritum, safnritum og dagblöðum. Í bindinu má finna fimm ljúfar jólasögur, bernskuminningar og aðrar sögur sem sýna hæfni Jóns Trausta til að blanda saman grípandi sögum og sannfærandi samfélagslýsingum.

  • Heiðarbýlið

    2

    Heiðarbýlið
    Heiðarbýlið

    "Brekkurnar breiða út víða faðma. Þær eru skrúðgrænar upp á brún og ofan í skaut. En þær laða enga skepnu til sín, nema nokkrar heimskar sauðkindur." Heiðarbýlið er hluti af seríunni Halla og Heiðarbýlið og er seinni partur sögunnar. Þessar skáldsögur Jóns Trausta eru á meðal vinsælustu framhaldssagna íslenskrar bókmenntasögu og nutu þær mikilla vinsælda þegar þær komu út snemma á 20. öldinni. Halla er af mörgum talin fyrsta metsölubók Íslands. Hér segir frá fólkinu á Heiðarbýli, afkomu þeirra, fjölskyldusögu og örlögum. Sagan á vel við lesendur Guðrúnar frá Lundi, aðdáendur hússins á sléttunni og alla lesendur sem una sér vel við að lesa sögulegar skáldsögur.

  • Sögur frá Skaftáreldi

    6

    Sögur frá Skaftáreldi
    Sögur frá Skaftáreldi

    "Á Síðunni var um þessar mundir mikið um fyrirburðasögur. Mörg ár undanfarið höfðu ókennilegar vatnavættis sézt í Feðgakvísl í Meðallandi. Nú bárust líka heldur en ekki mergjaðar sögur af skrímsli, sem lágu í Hólmsá. Sögur gengu miklar um rauðan sjó við Vestmannaeyjar." Sögur frá Skaftáreldi er fyrsta sögulega skáldsaga Jóns Trausta. Hér eru Skaftáreldar, eldgos sem stóð frá 1783 - 1784, sögusviðið en samhliða náttúruvá glíma sögupersónur við miklar ólgur í sínu persónulega lífi. Þessi tvíræða og margbrotna skáldsaga er bæði fróðleg og skemmtileg, sérstaklega fyrir lesendur sem hafa áhuga á jarðhræringum, sögulegum skáldsögum og sögu Íslands.

  • Leysing

    4

    Leysing
    Leysing

    "Með köldu glotti og kurteisu viðmóti umgekkst hann hvern mann og dró sig hvergi í hlé. Með því espaði hann gremju þá og óbeit, sem nóg var af í skapi manna." Leysing er ein af samtímasögum Jóns Trausta. Skáldsagan segir frá daglegu lífi Íslendinga í kaupstöðum á 20. öldinni. Hér snertir höfundur á íslenskri hagsögu í samfélagslegu samhengi en söguþráðurinn tekst á við ástir, sekt og samvisku manna.

  • Tvær gamlar sögur

    8

    Tvær gamlar sögur
    Tvær gamlar sögur

    "En fámálugir og þunglyndir voru þeir menn, sem ólu aldur sinn undir jökli á vetrarvertíðinni. Fámálugir og þunglyndir voru Íslendingar yfirleitt á liðnum öldum, og enn er það ríkt í eðli þeirra. " Í þessari bók er að finna tvær sögulegar skáldsögur Jóns Trausta. Hann blæs hér lífi í sögu Íslands með skáldagleði sinni og þekkingu. Sýður á Keipum er saga frá byrjum 17. aldar. Krossinn helgi í Kaldaðarnesi er saga frá siðaskiptum. Bókin hentar öllum sem eru forvitnir um sögu Íslands. Hún hentar sérstaklega unnendum klassískra bókmennta og þeim lesendum sem vilja kynnast verkum Jóns Trausta betur.

  • Góðir stofnar

    7

    Góðir stofnar
    Góðir stofnar

    Góðir stofnar er safn smásagna og inniheldur: Anna frá Stóruborg, saga frá sextándu öld og fleiri sögur, Veislan á Grund (8. júlí 1362), Hækkandi stjarna (1392 – 1405) og Söngva-Borga saga frá fyrri hluta 16. Aldar. Jón Trausti er þekktur fyrir sérstakt vald á sögulegum skáldsögum og yfirgripsmikla þekkingu á sögu Íslands.

  • Ferðaminningar

    11

    Ferðaminningar
    Ferðaminningar

    Ferðaminningar Jóns Trausta hafa að geyma frásögn hans af flakki um Þýskaland, Sviss og England á síðari hluta 19. aldar. Þess merkilega bók veitir innsýn í hvernig ferðalögum var háttað á fyrri öldum og hvernig íslendingur upplifði umheiminn áður en aðgengi að upplýsingum var á hverju strái.

  • Smásögur I-II

    10

    Smásögur I-II
    Smásögur I-II

    Hér birtast tíu smásögur Jóns Trausta frá árunum 1905 - 1910. Friðrik áttundi, Tvær Systur, Á Fjörunni, Sigurbjörn Sleggja, Strandið á Kolli, Gráfeldur, Bleiksmýrar Verksmiðjan - fjögur sendibréf, Stjórnarbylting, Blái Dauðinn - saga frá 18. Öld og Þegar ég var á Fregátunni. Sögurnar eru margar sögulegar, segja frá ævintýrum í íslenskum sveitum og samlífi manns og náttúru.

  • Bessi gamli

    9

    Bessi gamli
    Bessi gamli

    Bessi Gamli er gamansaga sem á sér stað í Reykjavík. Sagt er frá hinum ýmsu litríku persónum borgarinnar, þeim er fylgt í veislur, á fyllirí og jafnvel í gegnum hversdagsleikann. Rætt er um stjórnmál á kímna vegu og rándýrir tanngarðar týnast í öllu fjörinu. Sögumaðurinn dvelur þó helst við Bessa gamla, sérvitran eldri mann sem hefur margt um Reykjavík og lífstíl borgarbúa að segja.

  • Ferðasögur

    12

    Ferðasögur
    Ferðasögur

    "Hefirðu nokkurn tíma sofnað fullur, lesari góður, og vaknað upp með timburmenn? Það er lítið betra að hafa sofnað með sjóveikis-klígju í kverkunum og sjóveikismixtúru í maganum." Í bókinni ferðasögur má finna samansafn sjálfsævisögulegra texta eftir Jón Trausta. Textarnir birtust í tímaritum og dagblöðum yfir ævi Jóns Trausta og segja frá ferðum hans um heiminn. Jón Trausti þótti einstaklega næmur á umhverfi og samfélag. Ferðasögur höfðar til þeirra sem eru forvitnir um upplifanir fólks á liðnum öldum. Hér er hægt að fá innsæi í hvernig ferðalögum var háttað á 20. öldinni.

  • Teitur

    13

    Teitur
    Teitur

    Hér er að finna ljóðleik í fimm sýningum. Sögusviðið er Skálholt og Bjarnarnes á fyrri hluta 15. aldar. Teitur Gunnlaugsson, Þórdís eiginkona hans, spákona, hjúkrunarkona ásamt ýmsum persónum sem við koma Skálholti eru þátttakendur í ljóðsögunni. Í þessu verki ber þess mikið merki hvað Jón Trautsi var laginn við að skapa sögur í gegnum fjölbreytt form bókmennta.

  • Sagnir, æfintýr og dýrasögur

    16

    Sagnir, æfintýr og dýrasögur
    Sagnir, æfintýr og dýrasögur

    "Guð fylgi ykkur strönd af strönd. Vér stráum kveðjum yfir sæinn og leggjum íslenzk ljóð í blæinn, sem ber þau yfir ykkar lönd." Sagnir, ævintýr og dýrasögur er samansafn ljóða, smásagna og annarra texta eftir Jón Trausta (1873 - 1918). Í þessu textasafni eru t.d. bókadómar eftir hann. Textasafnið hentar sérstaklega bókmenntaunnendum og gefur góða innsýn inn í sögu íslenskra bókmennta.

  • Dóttir faraós

    14

    Dóttir faraós
    Dóttir faraós

    Í leikritinu Dóttir faraós hlusta börn á ömmu sína segja töfrandi sögu af konu sem ferðast til Íslands í selslíki. Þegar til Íslands er komið lendir hún í hremmingum og kemst ekki heim aftur. Jón Trausti er þekktur fyrir sögulegar skáldsögur en hér er að finna eina leikritið eftir hann.

Related to Jón Trausti

Related categories

Reviews for Jón Trausti

Rating: 0 out of 5 stars
0 ratings

0 ratings0 reviews

What did you think?

Tap to rate

Review must be at least 10 words