Discover millions of ebooks, audiobooks, and so much more with a free trial

Only $11.99/month after trial. Cancel anytime.

Ronin 1 - Sverðið
Ronin 1 - Sverðið
Ronin 1 - Sverðið
Ebook32 pages19 minutes

Ronin 1 - Sverðið

Rating: 0 out of 5 stars

()

Read preview

About this ebook

Lítill strákur vaknar í miðjum skógi. Hann hefur enga hugmynd um hver hann er eða hvernig hann komst þangað. Með hjálp manna og dýra og sverðs sem býr yfir sérstökum krafti kemst þessi ronin í gegnum mörg ævintýri. Þegar lítið þorp þarfnast verndar hans verður hann að læra að berjast með sæmd fyrir bændurna sem hann þarf að bjarga og fyrir sjálfan sig.Lítill strákur vaknar í miðjum skógi og man ekki hver hann er eða hvaðan hann kemur. Í bókunum lendir Ronin í mörgum ævintýrum og hann þarf að leggja sig allan fram. Á leiðinni kynnist hann fólki sem hjálpar honum að þroskast og læra það sem skiptir máli. Með hjálp töfrasverðsins og aflsins sem því fylgir berst Ronin fyrir hið góða. Með hverju ævintýri færist hann nær því að skilja hver hann í rauninni er.
LanguageÍslenska
PublisherSAGA Egmont
Release dateJul 15, 2020
ISBN9788726475081

Related to Ronin 1 - Sverðið

Titles in the series (43)

View More

Related ebooks

Reviews for Ronin 1 - Sverðið

Rating: 0 out of 5 stars
0 ratings

0 ratings0 reviews

What did you think?

Tap to rate

Review must be at least 10 words

    Book preview

    Ronin 1 - Sverðið - Jesper Nicolaj Christiansen

    Ronin 1: Sverðið

    Original title:

    Ronin 1: Sværdet

    Translated by Hilda G. Birgisdóttir

    Copyright © 2010, 2020 Jesper Nicolaj Christiansen and SAGA Egmont, Copenhagen

    All rights reserved

    ISBN: 9788726475081

    1. E-book edition, 2019

    Format: EPUB 2.0

    All rights reserved. No part of this publication may be reproduced, stored in a retrieval system, or transmitted, in any form or by any means without the prior written permission of the publisher, nor, be otherwise circulated in any form of binding or cover other than in which it is published and without a similar condition being imposed on the subsequent purchaser.

    Ronin 1 - Sverðið

    HVER ER ÉG?

    Skært ljós. Ljós og sársauki. Þetta var það fyrsta sem hann tók eftir. Ljós, sársauki, ógleði og kuldi. Honum var ískalt og hann skalf.

    Það hreyfðist eitthvað í grasinu. Hjartað í honum sló hraðar þangað til hann áttaði sig á að þetta var bara höndin á honum sjálfum. Hann brosti og honum létti en svo varð hann aftur hræddur. Í þetta sinn við að heyra röddina í sjálfum sér.

    Hann lá í blauti grasinu, umkringdur trjám. Furutrjám. Grasið sem hann lá í var í rjóðri í þéttum furuskógi. Hann fann til í höfðinu. Sársaukinn var nístandi. Hann kom við ennið á sér. Það var blautt og heitt. Það var eitthvað klístrað og heitt á hendinni á honum.

    Blóð.

    Hann öskraði.

    Fugl tók sig á loft í nálægu tré. Hann reyndi að muna hvernig hann hafði lent þarna en hann mundi ekkert. Hann mundi ekki einu sinni hvað hann hét. Ekki heldur nöfn mömmu sinnar og pabba. Hann mundi ekki hvar hann átti heima eða

    Enjoying the preview?
    Page 1 of 1