Sannleikurinn
()
About this ebook
Hvert er förinni heitið?
Hver er tilgangur lífsins?
Opnaðu augun fyrir Sannleikanum um sjálfan þig, lífið og tilveruna í kringum þig.
Opnaðu hjartað fyrir Kærleikanum
Lærðu að skilja og meðtaka Einingu alls sem er.
Related to Sannleikurinn
Related ebooks
Heilög Leyndarmál Lífsins og Aðrar Sögur Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsAndleg Leiðarvísir Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsSjaldgæfar Grace Vistað í ákveðnum tilgangi Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsFalinn sannleikur og Aðrar Sögur Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsLeynibók Vatíkansins Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsLeiðir Endur Lausnar og Aðrar Sögur Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsStormar Tilverunnar og Aðrar Sögur Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsÁ Vegi Uppljómunar og Annarra Sagna Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsEinfaldara Líf: Þetta Þarf Ekki Að Vera Svona Flókið Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsFinndu frelsi innra með þér Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsKjarni Visku Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsHvernig á að Lækna Sjálfan þig, þegar Enginn Annar Getur. Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsAð ná hinu ótrúlega Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsÁ Námsbraut og Öðrum Sögum Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsEkkert Getur Flúið örlög þín Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsAð Takast Á Við Djöfla: Að Skilja Klínískt Þunglyndi Frá Sjónarhóli Eftirlifenda Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsAugnablik Charisma: Laða að fólk eins og Magnet og byggð persónuleg tengsl Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsÉg er Ósýnilegur og Aðrar Sögur Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsHámarka andlega möguleika Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsAndstæðar Hliðar Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsLestu það sem aðrir geta ekki: Náðu þér í félags- og samskiptahæfileika þína Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsTölur sem Lækna Opinbera Aðferð Grigori Grabovoi Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsAð ná tökum á visku: leið þín til lífsfyllingar Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsSkammtaflækju og sameiginlega undirmeðvitund. Eðlisfræði og frumspeki alheimsins. Nýjar túlkanir Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsKínversku klukkumorðin Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsBókin um Feng Shui Uppfærða Tækni. Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsSagan um græna köttinn Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsAð búa til skýra hugsun Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsAð ná tökum á áhrifum: Myrk leyndarmál sannfæringarkrafts og hugarstjórnunar Rating: 0 out of 5 stars0 ratingsRæktun Heimilisketta og ráð til að Halda þeim Ánægðum Rating: 0 out of 5 stars0 ratings
Reviews for Sannleikurinn
0 ratings0 reviews
Book preview
Sannleikurinn - Ragnar Viktor Karlsson
Efnisyfirlit
Sálin
Egóið
Persónuleikinn og líkaminn
Hugsanir, gjörðir og orð
Bænin
Fyrirgefningin
Sorgir og reiði
Óttinn
Samskipti þín við aðra
Tilgangur lífsins
Trúarbrögðin
Jesús Kristur
Hið innra og hið ytra
Heimskerfið
Að þóknast Guði
Hinn andlegi vegur
Guðsríkið
Láttu gott af þér leiða
-Sannleikur alls sem er
-Kærleikur alls sem er
-Eining alls sem er
Það er Guðsríkið
Sannlega segi ég þér:
Það mun koma sá dagur að þú munt upplifa:
Sannleika alls sem er.
Kærleika alls sem er.
Einingu alls sem er.
Það mun koma sá dagur að þú munt upplifa
Guðsríkið.
Leitið og þér munið finna.
Sálin
Það sem er sannleikur fyrir öðrum verður ekki sannleikur fyrir þér fyrr en þú hefur upplifað og meðtekið hann.
Hver ertu? Hvaðan kemurðu og hvert er för þinni heitið? Hver er tilgangur ferðarinnar?
Þegar þú byrjar að vakna til meðvitundar um sjálfan þig, lífið og tilveruna í kringum þig, þá koma óteljandi spurningar upp í huga þinn, þig þyrstir í svör og ferð að leita svara.
Innra með þér er sanna og falska sjálfið. Sanna sjálfið er sálin og það er hún sem þú ert. Þú ert sál með líkama og persónuleika. Sál þín er eilíf og hefur verið til í þúsundir ára. Hún kemur úr Guðsorkunni og er hluti af Guði. Allt sem þú sérð og skynjar í kringum þig er Guðsorkan og þú ert hluti af öllu sem er. Þú ert hluti af öllu mannkyni, af jörðinni og öllu sköpunarverki Guðs.
Upplag sálarinnar er:
Sannleikur alls sem er.
Kærleikur alls sem er.
Eining alls sem er.
Sálinfæðistsemljósögn –meðvitundúrGuðsorkunni og kemur úr Guðsríkinu. Hún fer í ferðalag til jarðarinnar, sem tekur þúsundir ára. Hún lifir mörgum lífum við ólíkar aðstæður. Hún upplifir allt það sem jarðneskt líf hefur upp á að bjóða. Í hverju lífi tekst hún á við fyrir fram ákveðin verkefni og áskoranir. Fyrir hvert jarðneskt líf ákveður hún hvað hún ætlar að læra og takast á við til að þroska sig og öðlast reynslu og upplifa það sem jarðneskt líf hefur upp á að bjóða. Á þann hátt öðlast sálin þroska, lærir frá lífi til lífs. Öll reynsla þín og upplifanir frá fyrri lífum búa í sál þinni, sem að lokum sameinast Guðsorkunni og öðlast eilíft líf í Guðsríkinu.
Hver er tilgangurinn með því að upplifa allt það dökka og illa sem jarðneskt líf getur haft upp á að bjóða? Til hvers að öðlast þá upplifun og reynslu, blekkingar, ótta, myrkur, sundrung, sorgir, hatur, reiði, ofbeldi og kvíða? Til að þekkja sannleikann þarftu að upplifa blekkinguna, til að njóta kærleikans þarft að upplifa óttann, til að njóta ljóssins þarftu að upplifa myrkrið og til að njóta einingar alls sem er þarftu að upplifa sundrungina.
Þegar þú