Discover this podcast and so much more

Podcasts are free to enjoy without a subscription. We also offer ebooks, audiobooks, and so much more for just $11.99/month.

81. Vinir og velgengni

81. Vinir og velgengni

FromLífið með Lindu Pé


81. Vinir og velgengni

FromLífið með Lindu Pé

ratings:
Length:
27 minutes
Released:
May 16, 2022
Format:
Podcast episode

Description

Við höldum áfram að ræða velgengni og nú með áherslu á vini og velgengni.  Hefurðu pælt í því hvort að þinn nánasti vinahópur gleðjist með þér þegar þér vegnar vel? Eða reyna þeir að draga úr þér? Ég hef persónulega upplifað að vinkona réði ekki við þegar mér fór að vegna vel aftur. Í stað þess að upplifa öfund þegar öðrum gengur betur en þér, hvað með að snúa því við og skoða hvað það sé sem þig langar í sem viðkomandi hefur? Af því þegar við öfundum aðra er það af því okkur langar í eitthvað sem þeir hafa. En í stað þess að fara í baktal og niðurrif, hvernig væri heldur að nýta tilfinninguna öfund sem áttavita að því sem þig langar í og þá velgengni sem þú þráir? Og leita heldur ráða hjá viðkomandi í stað þess að fara í öfund og baktal. Talað er um að við verðum samtalan af þeim fimm sem við erum í mestu samskiptum við. Þess vegna skiptir svo miklu máli að velja vini sína og þá sem maður umgengst, af kostgæfni. Ég kaus að trúa því fyrir löngu síðan að „konur eru konum bestar“ og það er hugsun sem ég hef trúað í gegnum lífið. Mér finnst virkilega gaman að fylgjast með konum sem vegnar vel, ég læt það ekki þýða að þá geti mér ekki vegnað vel. Þvert á móti þá fyllist ég eldmóði að fylgjast með konum sem eru að gera frábæra hluti. Það er til nóg handa öllum og ég vil læra af þeim konum sem vegnar betur en mér sjálfri. Við Dögg lífsþjálfi í LMLP ræðum þetta spennandi efni í þessum þætti.   NÁNARI UPPLÝSINGAR: 28 daga Heilsuaáskorun Ertu komin/n með nóg af sykri og unninni færðu? Þá skaltu hreinsa til í mataræðinu með 28 daga Heilsuáskorun. Þeta er einfalt: Þú skiptir út einni máltíð fyrir einn heilsudrykk. Stútfullt efni af ráðum og uppskriftum af allskyns saðsömum þeytingum sem bæta heilsuna. Einfalt, bragðgott og virkar!  7 daga áætlun að vellíðan Fáðu aukna vellíðan í þitt daglega líf, meiri lífsgæði og heilsan bætist. Dagleg áætlun, uppskriftir að mataræði í 7 daga, ráð o.mfl. Heimasíða Lindu  Skoðaðu allt sem er í boði og skráðu þig á ókeypis póstlista. LMLP  Hér færðu Lindu sem lífsþjálfa þinn. Vikulegir fundir, þú losar þig við aukakílóin, byggir upp sjálfsmyndina, færð aukið sjálfstraust og trú á þig sjálfa-og þú ferð að lifa draumalífin þínu. Skráðu þig í prógrammið Lífið með Lindu Pé. HBOM (Hættu að borða of mikið). Hvernig myndi þér líða ef þú grenntist um 5, 10 eða 20 kíló? 4 vikna vefnámskeið, þú lærir nýja aðferð til þess að hætta að borða of mikið. InstagramSendu mér endilega skilaboð og segðu mér hvað þú tókst með þér úr þættinum. I-tunes meðmæli Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir!
Released:
May 16, 2022
Format:
Podcast episode

Titles in the series (100)

Podcastþættir Lindu Pé sem er menntaður lífsþjálfi með þyngdartap sem sérgrein. Þættirnir innihalda uppbyggilega fróðleikspistla og eru byggðir á reynslu hennar við að hjálpa konum að losna við aukakílóin, byggja upp sjálfsmyndina og lifa draumalífinu. Nánari upplýsingar: www.lindape.com