127 min listen
#124 - Brynjar Karl
ratings:
Length:
176 minutes
Released:
Mar 2, 2022
Format:
Podcast episode
Description
“You can’t make a pig a race horse, but you can make a pretty fast pig” - Þetta hefur alltaf fests með mér, mér finnst svo gaman að þjálfa svín. Mér finnst svo gaman þegar svínin pakka veðhlaupahestunum saman. Brynjar Karl, stofnandi og eigandi Sideline Sports (hugbúnaður notaður af færustu þjálfarateymum heims: NBA, NFL, Bandaríski herinn ofl.), eigandi KeyHabits, meistari í kvíðanum og þjálfari íþróttafélagsins Aþenu. Brynjar hefur 35 ára starfsreynslu, unnið með herakademíum í Bandaríkjunum, Alþjóða körfuknattleikssambandinu (FIBA) og virtum þjálfurum um allan heim en ákvað að taka erfiðasta verkefni lífs síns að sér á hliðarlínunni: að þjálfa ungar stelpur í körfubolta. Vegferðin og þjálfunaraðferðir Brynjars stinga í stúf og samfélagið situr ekki á skoðunum sínum þegar kemur að börnunum. Börnin eru þá ekki vandamálið í augum Brynjars heldur foreldrarnir og íþróttafélögin - enda fengu kraftar og hugmyndafræði hans óvæntan mótbyr. Við ræðum tvískiptan feril Brynjars, sem þjálfari og frumkvöðull í ótrúlegu harki í Bandaríkjunum, Sideline Sports, vanviðring samfélagsins á börnum, mannréttindabrotin inní íþróttahúsunum, innihaldslaus hrós foreldra til kvíðna barna, slagsmál stelpna og hvar Brynjar fer á skjön við samfélagið.
Released:
Mar 2, 2022
Format:
Podcast episode
Titles in the series (100)
#4 Hlaup 2/3 - Arnar Pétursson: Arnar var nífaldur Íslandsmeistari í ýmsum halupum árið 2017. Hann var efnilegur körfuboltamaður sem sneri sér að hlaupum eftir að hafa fengið smjörþefinn af árangri á þeim vígvelli þegar hann hljóp sitt fyrsta maraþon, gegn vilja... by The Snorri Björns Podcast Show